Ég heiti Lárus Sigurðarson og er 34 árs gamall ljósmyndari, búsettur í Reykjavík. Ég byrjaði frekar seint að taka myndir, eignaðist mína fyrstu myndavél árið 2000 en þetta vatt fljótt upp á sig og ég byrjaði að taka ljósmyndun alvarlega sumarið 2003. Í kjölfarið fór ég í Iðnskólan í Reykjavík haustið 2006 (heitir víst Tækniskólinn í dag) og útskrifaðist þaðan af ljósmyndabraut vorið 2007. Ég fór svo á samning hjá auglýsinga/markaðsstofunni Expo og tók sveinspróf í ljósmyndun haustið 2008 og er því lærður ljósmyndari.
Ég er ekki þessi “týpíski portretljósmyndari” því ég starfa einnig í auglýsingageiranum og það heldur mér ferskum. Ég hef jafn gaman af því að mynda úti eða á einhverjum flottum stað og hefðbundnum stúdiómyndatökum. Ég er opinn fyrir öllum hugmyndum og hvet alla sem koma til mín í myndatöku að bera þær undir mig og ég finn leið til að framkvæma þær.
Ef fólk vill skoða fleirri myndir eftir mig þá held ég út annari síðu, lallisig.is þar sem er meira auglýsingatengt efni. Einnig er ég duglegur að henda inn myndum á flickr.com, þangað fara nánast daglega nýjar myndir.
Stúdíóið er á Laugavegi 178, sem er hornhús, það er beint fyrir aftan bensínstöðina þar sem Næturvaktin var tekin upp. Það er samt gengið inn frá Bolholti en ekki Laugaveginum, inngangurinn er vinstra megin við Tékk-kristal. Þar er einungis rauð lyfta og stigagangur á jarðhæð. Ég er á þriðju hæð innst inn gangin, hurðin uppi er merkt mér. Það stendur Trackwell með stórum stöfum á þeirri hlið á húsinu sem er gengið inn frá.